
FAFU er hönnunar- og þróunarfyrirtæki sem framleiðir opið leikefni fyrir börn. Vörur FAFU hafa ekki augljósa virkni og krefja börn um sköpun og frumkvæði í leik. Við vinnum með liti, form, áferð og lögmál í okkar hönnunarferli og leggjum áherslu á það að barnið fái fjölbreytta virkni út úr hverjum hlut og sjái jafnvel eitthvað út úr vörunum sem við sjáum ekki. FAFU leggur mikla áherslu á samstarf við leikskóla og hefur mikinn áhuga á að bæta áhugasömum kennurum og stjórnendum í hönnunarteymi félagsins. Áhugasamir mega gjarnan senda póst á fafu@fafutoys.com
Við notum náttúrleg og umhverfisvæn hráefni í bland við siðgæðisvottuð efni og framleiðsluaðferðir. Lífræn bómull er mjög sterk sem gefur vörunni lengri líftíma í leikskólum og skólum þar sem notkunin er mikil.
Fyrsta vörulína FAFU ber nafnið FIKRA og er fjölnota búningalína sem nýtist börnum við að þroska félagsfærni sína og frásagnarhæfni. FIKRA er byggð á frjálsu vali og því seljum við hverja einstaka vöru sem slíka, en ekki í pakka með öðrum vörum. Hver FIKRA vara hefur að geyma óteljandi notkunarmöguleika og þannig gefur hún barninu rými til að virkja ímyndunaraflið og skapa sér sinn eigin veruleika án allrar íhlutunar fyrirframgefinna hugmynda.
- Kennitala: 420609-1240
- VSK númer: 102107
- Ofanleiti 2, 103 Rvk
- Iceland
- fafu@fafutoys.com
- Sími: +354 546 0745